Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 21. maí 2018 16:12
Ívan Guðjón Baldursson
Stoke að kaupa knattspyrnustjóra Derby
Mynd: Getty Images
Stoke City er í viðræðum við Derby County um félagaskipti Gary Rowett, knattspyrnustjóra Derby.

Stoke reyndi að fá Rowett til að taka við liðinu í janúar en Derby lokaði á það. Nú segir Sky að Stoke sé reiðubúið til að greiða rétt tæpar tvær milljónir punda fyrir Rowett.

Rowett verður því að öllum líkindum kynntur sem nýr stjóri Stoke City í vikunni en hann hefur stýrt þremur félögum í ensku neðri deildunum við mjög góðan orðstír.

Hann gerði vel hjá Burton, Birmingham og svo hjá Derby, sem rétt missti af sæti í úrvalsdeildinni í ár eftir samanlagt 2-1 tap gegn Fulham í undanúrslitum umspilsins.

Rowett var einnig leikmaður hjá þessum félögum. Taki hann við Stoke verður það fyrsta félagið sem hann stýrir án þess að hafa spilað fyrir.
Athugasemdir
banner
banner
banner