Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. maí 2018 07:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Talisca orðaður við Liverpool
Mynd: Getty Images
Senol Gunes, þjálfari Besiktas hefur gefið í skyn að Anderson Talisca sé á leið til Liverpool.

Talisca hefur verið síðustu tvö ár á láni hjá tyrkneska félaginu og staðið sig vel. Bæði Roma og Wolves eru talinn áhugasöm og nú hefur Liverpool bæst í kapphlaupið.

Gunes gaf sterklega í skyn að Talisca væri á leið til Englands með því að segja að hann og Cenk Tosun gætu orðið andstæðingar á næstu leiktíð.

Þá er Manchester United einnig sagt áhugasamt um þennan skemmtilega leikmann, það verður því spennandi að sjá hvert hann fer í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner