Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 21. maí 2018 07:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Valverde kveður Iniesta með virktum
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta spilaði kveðjuleik sinn með Barcelona í gær er liðið sigra Real Sociedad. Ernesto Valverde segir Iniesta vera sögulegan leikmann.

Titill Börsunga var í höfn fyrir löngu og síðasti leikur tímabilsins snérist því um að kveðja hinn 34 ára Iniesta sem er á förum í sumar.

Eftir leikinn hafði Valverde aðeins góða hluti að segja um Iniesta.

„Við vildum keppa og vinna en dagurinn var dagur Andres og stuðningsmennirnir gerðu hann einstakan," sagði Valverde.

„Leikmenn eins og hann gleymast ekki. Hann og Messi eru einstakir."

Iniesta hefur ekki enn staðfest hvað hann verður á næsta tímabili en nýjustu fregnir herma að hann sé á leið til Japans.
Athugasemdir
banner