Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 21. júní 2017 22:30
Elvar Geir Magnússon
Sara Björk við Rakel: Þú hraust svakalega á tímabili
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir og Rakel Hönnudóttir eru saman í herbergi í hótellífi íslenska kvennalandsliðsins.

Þær ræddu sambúðina í þættinum Leiðin á EM á RÚV í gær en þá var fyrsti þáttur af fjórum á dagskrá.

Edda Sif Pálsdóttir er umsjónarmaður þáttanna en María Björk Guðmundsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson annast dagskrárgerð.

„Veistu hvað mér finnst mest pirrandi við þig? Þú ert hætt því núna reyndar, en þú hraust svakalega á tímabili. Og ég lamdi í þig, ég lamdi svo oft í þig," sagði Sara við Rakel sem viðurkennir vandamálið en segir það hafa lagast mikið eftir að hún fór í kirtlatöku.

Sjáðu atriðið í heild hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner