Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. júní 2018 13:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fred til Manchester United (Staðfest)
Fred er loksins mættur.
Fred er loksins mættur.
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fred er genginn í raðir Manchester United. Það tók sinn tíma að ganga frá skiptunum en loksins er allt klárt. Hann er orðinn leikmaður rauðu djöflanna.

Fred kemur til United frá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk fyrir 47 milljónir punda.

Hinn 25 ára gamli Fred skrifar undir fimm ára samning við Man Utd.

Hann er annar leikmaðurinn sem félagið fær til sín í sumar á eftir bakverðinum Diogo Dalot.

Fred, sem er í augnablikinu á HM í Rússlandi með Brasilíu, var kynntur til leiks með skemmtilegu myndbandi sem sjá má hér að neðan. Þar kemur píanó við sögu eins og þegar Alexis Sanchez var tilkynntur hjá félaginu.



Athugasemdir
banner
banner