Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. júní 2018 16:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gerrard fær Flanagan til Rangers (Staðfest)
Jon Flanagan.
Jon Flanagan.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard hefur fengið fyrrum liðsfélaga sinn, Jon Flanagan, til skoska félagsins Rangers.

Bakvörðurinn Flangan skrifaði undir tveggja ára samning við Rangers. Hann mun vinna aftur með Gerrard en þeir spiluðu saman hjá Liverpool.

Gerrard er goðsögn hjá Liverpool en það er ekki hægt að segja það sama um hinn 25 ára gamla Flanagan. Flanagan lék 51 leik fyrir aðallið Liverpool áður en félagið tilkynnti það á dögunum að ekki yrði endursamið við hann.

Flanagan var á láni hjá Bolton seinni hluta síðustu leiktíðar.

Fyrr á þessu ári var Flanagan dæmdur fyrir líkamsárás á kærustu sína, en hann mun reyna að koma sér aftur á beinu brautina í Skotlandi..
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner