Önnur umferð í riðlakeppni heimsmeistaramótsins heldur áfram í dag og við Íslendingar munum fylgjast sérstaklega með leiknum sem fram fer í kvöld.
Þá munu Argentína og Króatía mætast í risa leik en liðin leika líkt og allir vita í riðli okkar Íslendinga.
Argentína þarf á sigri að halda gegn sterkum Króötum sem unnu Nígeríu í fyrsta leik sínum.
Þá er einnig leikið í C-riðli. Í hádeginu munu frændur okkar Danir mæta Ástralíu. Danir unnu Perú í fyrsta leik en Ástralía tapaði naumlega gegn Frökkum.
Frakkland og Perú mætast einmitt í hinum leik riðilsins en sá leikur hefst klukkan 15:00.
Allir leikirnir eru að sjálfsögðu í beinni á RÚV.
C-riðill
12:00 Danmörk - Ástralía
15:00 Frakkland - Perú
D-riðill
18:00 Argentína - Króatía
Athugasemdir