Leiknir R. 1 - 1 Selfoss
0-1 Gilles Ondo ('3)
1-1 Sólon Breki Leifsson ('65)
0-1 Gilles Ondo ('3)
1-1 Sólon Breki Leifsson ('65)
Leiknir R. fékk Selfoss í heimsókn í síðasta leik áttundu umferðar Inkasso deildarinnar.
Það byrjaði ekki vel fyrir heimamenn í Leikni því markahrókurinn Gilles Mbang Ondo kom Selfyssingum yfir strax á 3. mínútu eftir misskilning í vörn Leiknis.
Eftir markið sóttu Leiknismenn og fengu þeir færi til þess að jafna leikinn en inn vildi boltinn ekki og Selfoss leiddi í hálfleik.
Selfoss spiluðu þéttan varnarleik og áttu Leiknismenn í erfiðleikum með að brjóta upp vörn gestanna en það tókst þó á 65. mínútu.
Þá skoraði Sólon Breki Leifsson eftir góða sendingu Kristjáns Páls Jónssonar.
Urðu það lokatölur en Leiknismenn reyndu hvað þeir gátu til þess að ná í stigin þrjú en ekki tókst það. Liðin sitja í 9. og 10 sæti deildarinnar.
Athugasemdir