fim 21. júní 2018 05:55
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ísland í dag - Áttunda umferðin í Inkasso-deildinni klárast
Haukar fær Þrótt R. í heimsókn
Haukar fær Þrótt R. í heimsókn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfyssingar mæta Leikni R. í Breiðholtinu
Selfyssingar mæta Leikni R. í Breiðholtinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimm leikir fara fram hér á Íslandi í dag og þar af tveir í Inkasso-deild karla.

Í Inkasso-deildinni eigast við Haukar og Þróttur R. á Ásvöllum og þá heimsækir Selfoss Breiðholtið þar sem Leiknir mun bíða þeirra.

Einn leikur er í kvennaboltanum í dag en þá mætast Augnablik og Grótta í 2. deild kvenna.

Þá er leikið í neðstu tveimur deildunum hjá körlunum. Ægir og KV eigast við í 3. deildinni og Kóngarnir heimsækja Álafoss í C-riðli 4. deildarinnar.

fimmtudagur 21. júní

Inkasso deildin - 1. deild karla
18:30 Haukar-Þróttur R. (Ásvellir)
19:15 Leiknir R.-Selfoss (Leiknisvöllur)

3. deild karla
19:15 Ægir-KV (Þorlákshafnarvöllur)

2. deild kvenna
19:15 Augnablik-Grótta (Kópavogsvöllur)

4. deild karla - C-riðill
20:00 Álafoss-Kóngarnir (Tungubakkavöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner