Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. júní 2018 09:21
Arnar Daði Arnarsson
Jói Berg horfir á síðustu æfingu landsliðsins fyrir leik
Icelandair
Jóhann Berg fylgist með æfingu í dag.
Jóhann Berg fylgist með æfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jói horfir á af bekknum.
Jói horfir á af bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allt bendir til þess að Jóhann Berg Guðmundsson leiki ekki með íslenska landsliðinu í öðrum leik sínu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi á morgun gegn Nígeríu í Volgograd.

Jóhann Berg fór meiddur af velli um miðbik seinni hálfleiks í fyrsta leik Íslands á mótinu gegn Argentínu síðasta laugardag.

Á síðustu æfingu landsliðsins á Volgograd leikvanginum horfði Jóhann Berg á frá hliðarlínunni.

Þetta eru slæm tíðindi fyrir íslenska landsliðið enda hefur Jóhann Berg verið í lykilhlutverki í liðinu undanfarin ár.

Ísland og Nígería mætast á morgun, föstudag klukkan 15:00 á íslenskum tíma.

Athugasemdir
banner
banner
banner