Ísland - Nígería á morgun
Rúnar Alex Rúnarsson, einn af markvörðum íslenska landsliðsins hitaði einn upp með Friðriki Ellerti Jónssyni einum af sjúkraþjálfurum íslenska landsliðsins á æfingunni á Volgograd leikvanginum í morgun.
Ísland mætir Nígeríu á leikvanginum á morgun klukkan 15:00.
Ísland mætir Nígeríu á leikvanginum á morgun klukkan 15:00.
Rúnar Alex æfði með landsliðinu í gær en það vakti athygli fjölmiðlamanna sem fengu að horfa á fyrstu 15 mínútu æfingarinnar í morgun að Rúnar hitaði einn upp en ekki með liðinu.
Rúnar Alex gekk í raðir franska úrvalsdeildarfélagsins, Dijon í vikunni og var í leiðinni þar með dýrasti markvörður Íslands frá upphafi.
Athugasemdir