„Mér fannst þetta frábær karakter sigur hjá mínu liði,“ sagði Heimir Guðjónsson eftir útisigur FH gegn Breiðabliki 4-2. Með sigrinum endurheimti FH toppsæti deildarinnar.
„Við byrjuðum leikinn ekki nógu vel. Þeir pressuðu okkur hátt og fórum ekki í þau svæði sem við höfðum undirbúið. Eftir því sem leið á hálfleikinn þá leystum við það betur og skoruðum mörk í kjölfarið. Eftir að Kassim var rekinn af velli þurfum við að verjast.“
„Ég var óvenju heitur í kvöld. Ég náði að rífast við flesta á svæðinu, áhorfendur, Willum og fleiri. Ég hef ekkert út á dómgæsluna að setja þaðan sem ég stóð. Ég hef reyndar ekki séð þetta aftur í sjónvarpinu en ég held þetta hafi verið rétt. Ég er alltaf svo rólegur, maður verður stundum að koma pumpunni í gang.“
„Auðvitað á þessi sigur að hjálpa. Við sýndum mikla samstöðu og góðan karakter. Stjarnan hefur verið að spila frábærlega og eru taplausir í deildinni og þeir eru ekkert að fara að gefa eftir.“
„Það er nánast öruggt að Kristján Gauti sé að fara. Ég veit ekki hvort það sé búið að tilkynna það en það er mjög líklegt. Það er auðvitað blóðtaka fyrir okkur þar sem hann hefur verið frábær en ég óska honum góðs gengis í atvinnumennskunni. Við munum reyna ða styrkja hópinn en það er ekkert í hendi.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir