Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. júlí 2014 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Klopp um Hummels: Þið vitið að þetta er allt saman kjaftæði
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi, hefur staðfest það við þýska fjölmiðla að Marco Reus og Mats Hummels komi til með að spila áfram með félaginu á komandi leiktíð. Þetta staðfesti hann bæði við fjölmiðla og sjónvarpsstöð Borussia Dortmund.

Marco Reus hefur verið sterklega orðaður við Bayern München að undanförnu en þá hafa lið á borð við Liverpool og Manchester United einnig verið á eftir honum.

Þýski varnarmaðurinn Mats Hummels hefur þá einnig vakið mikinn áhuga frá Manchester United og Barcelona en frammistaða hans hjá Dortmund og þýska landsliðinu hefur ekki farið framhjá neinum.

Klopp hlær þó að þessum sögusögnum og segir að leikmennirnir komi til með að spila fyrir Dortmund á leiktíðinni sem er að hefjast.

,,Töluðu þeir ekki líka um 20 milljónir evra fyrir Hummels? Þið vitið að þetta er allt saman bölvað kjaftæði," sagði Klopp í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner