Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. júlí 2014 09:45
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Liverpool spyrst fyrir um Isco
Powerade
Isco gæti verið á leið til Liverpool.
Isco gæti verið á leið til Liverpool.
Mynd: Getty Images
William Carvalho.
William Carvalho.
Mynd: Getty Images
Hér að neðan er allt helsta slúður dagsins úr enska boltanum.



Micah Richards vill fara frá Manchester City á láni. Tottenham, Newcastle og Liverpool hafa áhuga á Richards en eru ekki tilbúinn að borga sjö milljónir punda til að kaupa leikmanninn. (Daily Express)

West Ham hefur áhuga á að fá Saphir Taider miðjumann Inter og Vitorino Antunes bakvörð Malaga á láni. (Daily Star)

Arsenal þarf að borga að minnsta kosti 24 milljónir punda fyrir William Carvalho miðjumann Sporting Lisabon. (Daily Telegraph)

QPR vonast ennþá til að fá Steven Caulker varnarmann Cardiff þrátt fyrir að Southampton hafi blandað sér í baráttuna um leikmanninn. (Sky Sports)

Leicester er að reyna að krækja í Islam Slimani framherja Sporting Lisabon. (Daily Mail)

Liverpool hefur spurst fyrir um Isco leikmann Real Madrid eftir að spænska félagið krækti í Toni Kroos og James Rodriguez. (Daily Star)

Everton er nálægt því að fá Brendan Galloway frá MK Dons. Liðsfélagi hans, Dele Alli, er orðaður við Liverpool. (Daily Express)

Didier Drogba er á leið til Chelsea á nýjan leik en hann mun gera eins árs samning við félagið. (Daily Mail)

Tottenham ætlar að reyna að fá Morgan Schneiderlin frá Southampton um leið og kaupin á Ben Davies eru í höfn. (Daily Mirror)

Koma Davies til Tottenham þýðir að Danny Rose gæti farið til Hull á sex milljónir punda. (Sun)

Dani Osvaldo á von á sekt frá Southampton eftir að hafa skrópað á æfingu. (Daily Mirror)

Mohamed Salah mun fara með Chelsea í æfingaferð til Austurríkis en óttast var að hann myndi ekki koma með vegna herþjónustu í heimalandi sínu Egyptalandi. (Daily Telegraph)

Emre Can gæti misst af æfingaferð Liverpool í Bandaríkjunum vegna meiðsla. (Guardian)
Athugasemdir
banner
banner
banner