Todor Hristov, leikmaður Víkings í Pepsi-deild karla, er farinn frá félaginu en Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins, staðfesti þetta við fjölmiðla í kvöld.
Hristov, sem er 27 ára gamall vængmaður, lék átta leiki með Víkingum í Pepsi-deildinni í sumar og einn leik í Borgunarbikarnum en þar gerði hann eitt mark.
Þessi búlgarski leikmaður lofaði góðu í byrjun tímabils en hefur þó ekki tekist að hrífa Ólaf Þórðarson, þjálfara liðsins að undanförnu og er því á heimleið.
Ólafur staðfesti við fjölmiðla í kvöld að Hristov væri farinn frá félaginu og væri á leið aftur heim til Búlgaríu.
Athugasemdir