Englandsmeistarar Chelsea hafa gengið frá kaupum á spænska framherjanum Alvaro Morata frá Real Madrid.
Kaupverðið er talið vera um 70 milljónir punda en Morata skrifaði undir fimm ára samning við þá bláklæddu.
Morata er er fjórði leikmaðurinn sem að Chelsea fær til liðs við sig í sumar en áður höfðu þeir fengið Antonio Rudiger, Bakayoko og síðan Willy Caballero.
Mikið er rætt um það á veraldarverfnum hvort að Morata hafi verið fyrsti valkostur Conte fyrir framherjastöðuna en Chelsea var mikið orðað við Romelu Lukaku í byrjun sumars en hann ákvað að ganga til liðs við Manchester United. Eitt er þó víst að Morata er mættur í ensku úrvaldsdeildina.
Athugasemdir