Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 21. júlí 2017 15:04
Magnús Már Einarsson
Andrew Robertson í Liverpool (Staðfest)
Mynd: Liverpool
Liverpool hefur keypt vinstri bakvörðinn Andrew Robertson í sínar raðir frá Hull.

Skotinn skrifaði undir hjá Liverpool í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu.

„Þetta er frekar óraunverulegt í augnablikinu. Auðvitað er ég hæstánægður," sagði Robertson eftir undirskrift.

„Það hafa verið ýmsar sögusagnir í gangi undanfarnar vikur og ég er ánægður með að þetta sé klárt og að ég sé orðinn leikmaður Liverpool."

James Milner var aðal vinstri bakvörður Liverpool á síðasta tímabili en hann hirti stöðuna af Alberto Moreno í byrjun móts. Robertson mun nú bætast við í samkeppni um stöðuna.
Athugasemdir
banner
banner