Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. júlí 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Lag Þórs kosið besta stuðningsmannalagið á Íslandi
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Í vikunni hefur farið fram kosning á besta stuðningsmannalagi Íslands í morgunþættinum Brennslunni á FM957 hjá þeim Hjörvari Hafliðasyni og Kjartani Atla Kjartanssyni.

Sex lög komust í úrslitin í dag en það voru lög frá Fjölni, Haukum, ÍBV, KR, Tindastóli og Þór.

Eftir kosningu hjá hlustendum fóru Tindastóll og Þór í úrslit.

Dómnefnd skipuð þeim Gunnleifi Gunnleifssyni, Hjálmari Erni Jóhannssyni, Hjörvari Hafliðasyni og Theodóri Pálmasyni kaus síðan lag Þórs sem það besta.

Smelltu hér til að hlusta á keppnina í Brennslunni

Hér að neðan má hlusta á lög Þórs og Tindastóls.


Athugasemdir
banner
banner