Víkingur R. hefur gert starfslokasamning við serbneska framherjann Ivica Jovanovic. Þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson varaformaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ivica kom til Víkings í vor og skoraði þrjú mörk í níu deildar og bikarleikjum með liðinu. Síðasti leikur hans var gegn ÍBV í Borgunarbikarnum í byrjun mánaðarins.
Ivica kom til Víkings í vor og skoraði þrjú mörk í níu deildar og bikarleikjum með liðinu. Síðasti leikur hans var gegn ÍBV í Borgunarbikarnum í byrjun mánaðarins.
Víkingur er að skoða Nikolaj Hansen, framherja Vals, en hann hefur æft með liðinu undanfarna daga.
Nikolaj hefur ekki verið í leikmannahópi Vals í undanförnum leikjum og hann fór ekki með liðinu í Evrópuleikinn gegn Domzale í Slóveníu í gær. Nikolaj hefur skorað tvö mörk í sex leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.
Víkingur skoðar Nikolaj nú áður en ákveðið verður hvort samið verði við hann eða ekki.
Víkingur fékk Veigar Pál Gunnarsson frá FH fyrr í mánuðinum en á sama tíma fór Muhammed Mert frá félaginu eftir að hafa spilað lítið.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir