Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. júlí 2017 18:30
Arnar Daði Arnarsson
EM í Hollandi
Sara mætir þremur liðsfélögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið mætir því svissneska á Tjarnarhæðinni í Doetinchem á morgun, laugardag klukkan 16:00 á íslenskum tíma.

Fjórtán leikmenn svissneska landsliðsins leika í Þýskalandi og þar af eru þrír leikmenn liðsfélagar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í Wolfsburg.

Þetta eru þær, Lara Dickenmann sem skorað hefur fjögur mörk gegn Íslandi í þremur leikjum, vinstri bakvörðurinn Noelle Maritz og Vanessa Bernauer.

Bernauer þekkir það eins og Dickenmann að skora gegn Íslandi en hún skoraði í undankeppni Heimsmeistaramótsins árið 2014 gegn Íslandi. Hún kom inn á sem varamaður gegn Austurríki í síðasta leik.

Leikur Íslands og Sviss verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner