Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 21. ágúst 2014 13:30
Magnús Már Einarsson
Carragher: Mun Balotelli komast í byrjunarlið Liverpool?
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher er ekki viss um að Mario Balotelli muni komast í byrjunarlið Liverpool ef hann gengur í raðir félagsins.

Balotelli virðist vera á leið til Liverpool en Carragher er ekki sannfærður um að hann geti komist í byrjunarliðið.

,,Þeir þurfa framherja, það er ekki spurning. Í augnablikinu hafa þeir einungis Daniel Sturridge og Rickie Lambert þar sem að Fabio Borini virðist á förum. Þú þarft framherja," sagði Carragher sem starfar í dag sem sérfræðingur fyrir Sky.

,,Er hann síðasta púslið? Myndi hann komast í byrjunarliðið ef allir eru heilir? Hver veit?"

,,Í augnablikinu er Daniel Sturridge kominn með 36 mörk í 50 leikjum hjá Liverpool og hann er eini framherjinn."

,,Myndi Brendan nota annan framherja, hver sem það verður, eins og hann gerði með Luis Suarez?"

,,Brendan Rodgers á marga möguleika núna og ég held að hann muni ekki oft nota sama liðið í leikjum. Þeir þurfa á þessu að halda."

Athugasemdir
banner