Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. ágúst 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
ÍR auglýsir eftir þjálfara í yngri flokka
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Knattspyrnudeild Íþróttafélags Reykjavíkur auglýsir eftir þjálfara fyrir yngriflokka karla og kvenna.

Knattspyrnudeild ÍR leitar að einstaklingi sem vill slást í hóp metnaðarfullra þjálfara sem nú þegar starfa hjá deildinni .

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er faglega góður, drífandi og með brennandi áhuga á að þjálfa börn og unglinga.

Æskilegt er að þjálfari hafi reynslu af þjálfun barna og unglinga og hafi sótt þjálfaranámskeið hjá KSÍ.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september, þegar knattspyrnuæfingar hefjast aftur hjá deildinni.

Reynsla, þjálfaramenntun og/eða íþróttafræðimenntun er kostur.

Umsókn skal senda á [email protected] (nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Halldóri yfirþjálfara í síma 891-6320.
Athugasemdir
banner
banner
banner