Liverpool hefur náð samkomulagi við AC Milan um kaup á framherjanum Mario Balotelli.
Kaupverðið hljóðar upp á 16 milljónir punda en Balotelli mun ganga í raðir Liverpool á næstu dögum ef ekkert óvænt kemur upp á.
,,Í dag er minn síðasti dagur hjá Milan. Ég er að fara til Liverpool," sagði Balotelli við liðsfélaga sína á æfingu í morgun.

Fyrr í mánuðinum þvertók Brendan Rodgers stjóri Liverpool fyrir að Balotelli væri á leið til félagsins en nú er það breytt.
Balotelli hefur skorað 30 mörk í 54 leikjum síðan hann kom til AC Milan frá Manchester City í janúar í fyrra.
Athugasemdir