Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 21. ágúst 2014 22:54
Mist Rúnarsdóttir
Sara Björk: Erum eitt af bestu liðunum
Sara Björk í leiknum í kvöld
Sara Björk í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum hundfúlar. Við ætluðum okkur í umspil og við ætluðum okkur til Kanada. Þetta er mjög svekkjandi,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði eftir tapið gegn Dönum í kvöld. Úrslitin þýða að Ísland á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppni HM 2015.

„Við spiluðum rosalega vel í fyrri hálfleik og náðum upp góðu spili. Fyrst og fremst náðum við að loka á sendingarnar þeirra inná miðjuna. Það var ætlunin og þær fundu engar lausnir við pressunni okkar. Það var það sem við ætluðum okkur að gera en mér fannst við hafa getað sett eitt, tvö mörk í fyrri hálfleik og það hefði klárlega breytt leiknum. Svekkjandi að fá á sig mark í seinni hálfleik og við náðum okkur kannski ekki alveg á strik eftir það.“

Íslenska liðið fékk þónokkur færi til að skora í fyrri hálfleik en tókst það ekki. Sara Björk kann engar skýringar á því.

„Þetta féll ekki með okkur í dag. Stundum er þetta stöngin út.“

Jafnfræði var með liðunum í leiknum og Sara Björk segir að gestirnir hafi ekkert komið sér á óvart.

„Þetta er topplið og við vissum alveg hvað þær geta. Við erum ekkert rosalega langt frá þeim og eins og við spiluðum í fyrri hálfleik þá sýnum við að við erum eitt af bestu liðunum og við getum alveg staðið í þeim. Við eigum skilið að fara til Kanada en það verður bara að bíða.“

Nú þegar draumurinn um HM er úr sögunni í bili segir Sara Björk að íslenska liðið muni klára riðlakeppnina með því að spila upp á stoltið. Hún vill svo einbeita sér að því að komast á næsta Evrópumót áður en hún fer að láta sig dreyma um þátttöku í HM 2017.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við landsliðsfyrirliðann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner