Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. ágúst 2014 11:40
Elvar Geir Magnússon
Toppslagur Leiknis og ÍA á laugardag beint á SportTv.is
Frá fyrri viðureign ÍA og Leiknis í sumar.
Frá fyrri viðureign ÍA og Leiknis í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
SportTv.is sýnir valda leiki í 1. deild karla í beinni vefútsendingu í samstarfi við Fótbolta.net. Á laugardag verður sannkallaður stórleikur í Breiðholtinu þegar Leiknir og ÍA eigast við en þetta eru tvö efstu lið deildarinnar.

Leikurinn á laugardag hefst klukkan 14:00 en Adolf Ingi Erlingsson sér um að lýsa. Þetta verður söguleg útsending því aldrei hefur verið sýnt beint frá leik á Leiknisvelli.

Leiknismenn eru nokkrum skrefum frá Pepsi-deildarsæti og ÍA er í öðru sæti, fimm stigum fyrir ofan liðið í þriðja sæti.

SportTv.is sýnir einnig leiki í Pepsi-deild kvenna og verður næsta útsending frá leik Vals og Stjörnunnar næsta þriðjudag.

Laugardagur 23. ágúst

1. deild karla 2014
14:00 Leiknir R.-ÍA (Leiknisvöllur) - SportTv.is
14:00 KV-KA (KR-völlur)
14:00 Grindavík-Haukar (Grindavíkurvöllur)
14:00 HK-Þróttur R. (Kópavogsvöllur)
14:00 BÍ/Bolungarvík-Selfoss (Torfnesvöllur)
16:00 Tindastóll-Víkingur Ó. (Sauðárkróksvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner