Landsliðsframherjinn, Alfreð Finnbogason er á bekknum hjá Real Sociedad sem mætir Almeria í Spænsku úrvalsdeildinni núna kl.10.00
Fastlega má búast við að Alfreð fái tækifæri í leiknum en hann hefur verið frá vegna meiðsla í byrjun tímabils.
Þetta er fjórði leikur Sociedad á tímabilinu en Alfreð hefur enn ekki komið við sögu í deildinni vegna meiðslanna. Lið hans er í 9. sæti deildarinnar en með sigri getur Sociedad lyft sér upp í fjórða til sjötta sæti, allt eftir hversu stór sigur liðsins verður.
Athugasemdir