Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 21. september 2014 11:39
Jón Stefán Jónsson
Darko Milanic tekur við Leeds (staðfest)
Darko Milanic tekur við Leeds
Darko Milanic tekur við Leeds
Mynd: Daily Mail
Leeds United sem spilar í Championship deildinni á Englandi hefur staðfest ráðningu Darko Milanic sem framkvæmdastjóra liðsins. Milanic var áður þjálfari Sturm Graz í Austurríki en félagið hefur staðfest að hann sé á leið til Leeds.

Ekki hefur enn verið gefið út hversu langan samning Milanic fær hjá Leeds en ljóst er að hans bíður erfitt verkefni því eigandi Leeds, Massimo Cellino er ekki beinlínis þekktur fyrir þolinmæði gagnvart knattspyrnustjórum. Hann rak Dave Hockaday, sem var síðasti stjóri Leeds, eftir einungis sex leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner