Roberto Martinez, stjóri Everton, var að vonum ósáttur með 3-2 tap sinna manna gegn Crystal Palace á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Everton komst 1-0 yfir snemma leiks með marki frá Romelu Lukaku, en gestirnir komust í 3-1 áður en heimamenn minnkuðu muninn aftur.
Everton komst 1-0 yfir snemma leiks með marki frá Romelu Lukaku, en gestirnir komust í 3-1 áður en heimamenn minnkuðu muninn aftur.
,,Mér fannst við byrja leikinn mjög vel. Við skoruðum fyrst og vorum að reyna að ná öðru marki. Ég sá Palace alls ekki komast inn í þennan leik," sagði Martinez.
,,Vítaspyrnan breytti leiknum, hún gaf þeim trú á því að þeir gætu fengið eitthvað úr leiknum."
,,Við verðum að vera mjög svekktir yfir því að hafa fengið á okkur þrjú mörk. Við fengum á okkur þrjú virkilega, virkilega klaufaleg mörk. Þessi mistök kostuðu okkur þrjú stig."
Athugasemdir