Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. september 2014 16:22
Jón Stefán Jónsson
Miklir kynþáttafordómar í garð Balotelli á Twitter
Hér má sjá skjáskot af nokkrum viðbrögðum sem Balotelli fékk við færslu sinni.
Hér má sjá skjáskot af nokkrum viðbrögðum sem Balotelli fékk við færslu sinni.
Mynd: Guardian
Balotelli er umdeildur en viðrbögðin við nýjustu twitterfærslu hans hafa gengið of langt
Balotelli er umdeildur en viðrbögðin við nýjustu twitterfærslu hans hafa gengið of langt
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli setti fyrr í dag inn færsluna: ,,Man Utd... Lol" á twitter síðu sína í kjölfar 5-3 sigurs Leicester á Man Utd. Viðbrögðin hafa heldur betur ekki látið á sér standa hjá reiðum stuðningsmönnum Manchester United.

Viðbrögðin eru hins vegar mörg hver því miður af sorglegri endanum og ekkert annað en svæsnir kynþáttafordómar sem varla er hægt að hafa eftir í frétt sem þessari.

The Guardian tók saman nokkur brot af skilaboðunum sem Balotelli hefur fengið og eru þýðingar á setningunum óþarfar en sjá má þær á myndinni hér til hliðar.

Vefurinn vitnar svo sérstaklega í einn notenda, @CraigSainsbury og birtir færslu hans sem er eftirfarandi: ,,Fuck you Mario you fucking nigger. Got eat some bananas and get ebola you dirty monkey." Svo virðist hins vegar vera sem náunginn hafi lokað aðgangi sínum í kjölfarið.

Athugasemdir
banner
banner
banner