Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. september 2014 17:24
Alexander Freyr Tamimi
Mourinho: Ástarsögu Chelsea og Lampard er lokið
Mourinho er ekki sáttur með Lampard.
Mourinho er ekki sáttur með Lampard.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að Frank Lampard beri engar tilfinningar í garð félagsins.

Lampard yfirgaf Chelsea eftir síðustu leiktíð og er nú á láni hjá Manchester City, en hann skoraði jöfnunarmark Englandsmeistaranna gegn gömlu félögunum í 1-1 jafntefli í dag.

Mourinho sagði óbeint í dag að Lampard hefði gefið skít í Chelsea með því að fara til City.

,,Frank Lampard er leikmaður Manchester City. Ég trúi ekki sögum um ástríðu og hjarta. Kannski er ég of mikill raunsæismaður í fótboltanum," sagði Mourinho.

,,Þegar hann ákvað að fara til eins mesta samkeppnisaðila Chelsea, þá lauk ástarsögunni. Hann gerði sitt starf sem atvinnumaður."

,,Hann fékk góðar móttökur, þetta er England og þetta er Chelsea. Chelsea fólk gleymir því ekki hvað leikmenn Chelsea gerðu fyrir þetta félag. Þetta gerðist fyrir mig þegar ég var þjálfari Inter. Þetta er það fallega við menningu Chelsea."


Athugasemdir
banner
banner