Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. september 2014 17:09
Jón Stefán Jónsson
Noregur: Matti Vill skoraði sigurmark Start
Matthías Vilhjálmsson tryggði Start sigur gegn Viking
Matthías Vilhjálmsson tryggði Start sigur gegn Viking
Mynd: Hilmar Þór Guðmundsson
Matthías Vilhjálmsson skoraði sigurmark Start í 1-0 sigri á Viking á útivelli í Norsku úrvalsdeildinni í dag.


Þrír Íslendingar voru í byrjunarliði Viking, þeir Jón Daði Böðvarðsson, Indriði Sigurðsson og Sverrir Ingi Ingason. Hjá Start byrjuðu Guðmundur Kristjánsson auk Matthíasar en Robert Sandnes, sem lék með Stjörnunni í fyrra kom inn á lið Start í síðari hálfleik.

Með sigrinum þokaði Start sér betur frá fallsvæðinu og situr 10. sæti deildarinnar. Viking siglir hins vegar lygnan sjó í sjöunda sætinu.
Athugasemdir
banner
banner