Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. september 2017 19:31
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Svona líta strákarnir okkar út í FIFA 18
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið er í nýrri útgáfu af FIFA, knattspyrnuleiknum geysivinsæla sem kemur út á Íslandi rétt fyrir mánaðamót.

Ísland átti að vera með í FIFA 17 en samkomulag náðist ekki á milli framleiðenda leiksins og Knattspyrnusambands Íslands við mikla óánægju íslenskra FIFA-iðkenda.

Það leit lengi út fyrir að Ísland yrði ekki með í FIFA 18 þannig að gleðin var mikil meðal Íslendinga þegar samkomulag náðist fyrr í september.

Hér fyrir neðan fylgir myndband þar sem hægt er að sjá andlit leikmanna íslenska landsliðsins í FIFA 18. Greinilegt er að meira var lagt í andlit leikmanna Íslands í ensku úrvalsdeildinni, Gylfa og Jóa Berg.

Sjá einnig:
Guðni Bergs um FIFA 18: Telur ekki margar milljónir króna


Athugasemdir
banner
banner