Heimild: The Guardian
Welski landsliðsmaðurinn Gareth Bale missir af leik Real Madrid gegn Liverpool annað kvöld vegna meiðsla.
Þessi magnaði leikmaður meiddist á mjöðm um helgina þar sem hann var á ferðinni með welska landsliðinu í undankeppni EM.
Ljóst var í gær að Bale myndi missa af leiknum gegn Liverpool í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og er talið að hann muni einnig missa af risaleknum gegn Barcelona um helgina.
Þrátt fyrir að hafa meiðst spilaði Bale allar mínúturnar í þeim tveim leikjum sem Wales spilaði um helgina.
Athugasemdir