þri 21. október 2014 17:09
Magnús Már Einarsson
Gerrard hafnaði Real Madrid nokkrum sinnum
Gerrard á fréttamannafundi í dag.
Gerrard á fréttamannafundi í dag.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segist hafa nokkrum sinnum haft tækifæri til að ganga í raðir Real Madrid á ferli sínum.

Gerrard segist að hluta til sjá eftir þeirri ákvörðun að hafa ekki farið til Real.

,,Það er mikill heiður að vera orðaður við stórt félag eins og Real Madrid," sagði Gerrard en Liverpool fær Real Madrid í heimsókn í Meistaradeildinni annað kvöld.

,,Ég fékk nokkur tækifæri til að ganga til liðs við Real Madrid en ég ákvað að standast freistinguna út af tilfinningunni sem ég ber til heimafélagsins."

,,Ég gæti séð eftir því síðar að hafa ekki tekið þeirri áskorun að reyna að spila í öðru landi en mesta eftirsjáin væri alltaf ef ég hefði farið frá Liverpool. Ég ber mikla virðingu fyrir Madrid en Liverpool er félag númer eitt hjá mér."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner