Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 21. október 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Harry Redknapp: Taarabt léttist af því að hann var veikur
Daily Mail birti þessa mynd af Taarabt í dag.
Daily Mail birti þessa mynd af Taarabt í dag.
Mynd: Daily Mail
Harry Redknapp, stjóri QPR, og Adel Taarabt eru byrjaðir í góðum sandkassaleik í fjölmiðlum en skotin ganga á milli þeirra þessa dagana.

Eftir 3-2 tap QPR gegn Liverpool um helgina sagði Harry að Taarabt sé 20 kílóum of þungur.

Taarabt svaraði fyrir sig í gær og sagði að Harry sjái aldrei hvað er í gangi á æfingum.

Taarabt sat einnig fyrir á myndinni hér til hliðar til að sýna að hann sé ekki jafn þungur og Harry vill meina. Harry svaraði Taarabt aftur í dag.

,,Eina ástæðan að hann missti kíló er að hann var með flensu. Það er eina leiðin til að ná kílóum af honum. Hann er ekki í formi til að spila. Það er sannleikurinn," sagði Redknapp.

,,Hann er versti atvinnumaður sem ég hef hitt og ég hef verið eini bandamaður hans hjá QPR undanfarin ár."

,,Hann reynir ekki að gera sitt besta og ég er búinn að vernda hann nægilega lengi. Ég gæti sjálfur andað inn á mynd og litið ágætlega út."


QPR hefur fengið nóg af rifrildinu og Tony Fernandes formaður félagsins ákvað að senda frá sér yfirlýsingu í dag.

,,Við erum ósáttir við að þetta rifrildi hafi verið gert opinbert og við höfum látið bæði Harry Redknapp og Adel Taarabt vita að við erum ósáttir með hvernig þeir hafa meðhöndlað þetta. Ég hef talað persónulega við þá báða um málið," sagði Fernandes.
Athugasemdir
banner
banner
banner