Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 21. október 2014 13:55
Elvar Geir Magnússon
PSG reyndi að fá Suarez í skiptum fyrir Cavani
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: Getty Images
France Football greinir frá því í dag að franska félagið Paris Saint Germain hafi reynt að fá Luis Suarez frá Liverpool áður en úrúgvæski sóknarmaðurinn var seldur til Barcelona.

PSG gerði tilboðið skömmu eftir að Suarez beit Giorgio Chiellini á HM en þá varð það nokkuð ljóst að hann væri á förum.

PSG bauð Edinson Cavani í skiptum en Cavani hefur ekki fundið sig hjá franska stórliðinu, meðal annars því hann er látinn spila mikið úti á vængnum þegar Zlatan Ibrahimovic er leikfær.

Sjálfur vildi Suarez fara til Barcelona en þar er fjölskylda eiginkonu hans búsett. Samkvæmt fréttum reyndi Liverpool að fá Alexis Sanchez á móti en Sílemaðurinn ákvað að ganga í raðir Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner