Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 21. október 2016 15:00
Magnús Már Einarsson
Æsingurinn eins og Justin Bieber væri mættur
Frá heimsókninni í dag.
Frá heimsókninni í dag.
Mynd: KSÍ - Hilmar Þór Guðmundsson Norðfjörð
Leikmönnum úr kvennalandsliðinu var boðið að heimsækja grunnskóla í Chongqing í dag. Kvennalandsliðið er á æfingamóti í Kína en næsti leikur er gegn Danmörku á morgun.

Dóra María Lárusdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir heimsóttu skólann í dag ásamt starfsfólki KSÍ og fengu allir blóm við komuna.

„Á skólalóðinu voru yfir 1000 krakkar með íslenska og kínverska fána og mætti halda að sjálfur Justin Bieber væri mættur á svæðið, slíkur var æsingurinn," segir á Facebook síðu KSÍ.

„Síðan var gengið á gervigrasvöll skólans þar sem lið skólans var kynnt og í ræðuhöldum var meðal annars talað um að mikið væri lagt upp úr því að hafa öflugt fótboltalið í skólanum."

„Stelpurnar okkar spiluðu svo við krakkana og sýndu kínversku ungmennin flotta takta á vellinum. Eftir leikinn voru teknar ótal myndir og eiginhandaráritanir gefnar en á stundum ætlaði allt um koll að keyra sökum æsings krakkana. Allir fengu þó að lokum mynd og áritun og þökkuðu krakkarnir fyrir sig með því að gefa öllum myndir sem þau sjálf höfðu gert.
Takk fyrir okkur!"


Smelltu hér til að sjá fleiri myndir á Facebook síðu KSÍ
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner