banner
   fös 21. október 2016 10:19
Magnús Már Einarsson
Evra búinn að sættast við Suarez - Birti mynd á Instagram
Mynd: Getty Images
Patrice Evra, varnarmaður Juventus, virðist hafa náð sáttum við Luis Suarez miðað við mynd sem hann hefur birt á Instagram.

Suarez var dæmdur í átta leikja bann árið 2011 fyrir kynþáttafordóma í garð Evra í leik Liverpool og Manchester United.

Suarez neitaði í kjölfarið að taka í höndina á Evra næst þegar Liverpool og Manchester United mættust.

Suarez fékk í gær gullskóinn fyrir að vera markahæstur á Spáni og Evra birti í kjölfarið mynd af honum á Instagram síðu sinni.

„Á minni Instagram síðu er bara ást og ekkert hatur! Luis, þú ert frábær leikmaður og besti leikmaður sem til er númer 9. Til hamingju. Ég elska þennan leik," skrifaði Evra en myndina má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner