Vinstri bakvörðurinn Christian Fuchs hefur framlengt samning sinn við Leicester til ársins 2019.
Fuchs bætist þar með í hóp leikmanna eins og Jamie Vardy, Riyad Mahrez, Wes Morgan og Kasper Schmeichel sem hafa einnig framlengt við Leicester undanfarna mánuði.
Fuchs bætist þar með í hóp leikmanna eins og Jamie Vardy, Riyad Mahrez, Wes Morgan og Kasper Schmeichel sem hafa einnig framlengt við Leicester undanfarna mánuði.
Fuchs var fastamaður í bakverðinum þegar Leicester varð enskur meistari á síðasta tímabili.
Austurríkismaðurinn spilaði á EM í sumar en hann var með í 2-1 tapinu gegn Íslendingum.
Athugasemdir