Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 21. október 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola blæs á orðróma um Aguero og Kompany
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur blásið á orðróma þess efnis að Sergio Aguero og Vincent Kompany séu að fara frá félaginu.

Aguero var á bekknum gegn Barcelona í fyrrakvöld á meðan Kompany var ekki í hóp.

Sögusagnir fóru í kjölfarið af stað um að Aguero og Kompany séu á förum.

„Vincent var ekki heill heilsu. Eins og ég sagði með Sergio eftir leik þá var þetta taktísk ákvörðun (að hafa hann á bekknum)," sagði Guardiola í dag.

„Ef Sergio ákveður að fara þá er það hans ákvörðun."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner