Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. október 2016 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Fosu-Mensah fann tvífara Ander Herrera
Miklir félagar þessir tveir
Miklir félagar þessir tveir
Mynd: Getty Images
Það er ekki skrítið að Ander Herrera hafi ekki verið að spila með Manchester United í gærkvöldi... hann var að sinna öðru starfi á Old Trafford á meðan á leiknum stóð.

Þetta er mat Hollendingsins Timothy Fosu-Mensah, sem spilaði stundarfjórðung er Manchester United bar sigurorðið af tyrkneska liðinu Fenerbache í Evrópudeildinni í gær.

Kollegi hans, Ander Herrera, var hvíldur í leiknum, en samkvæmt Fosu-Mensah var Spánverjinn mættur á hliðarlínuna að sinna dómarastörfum fyrir UEFA.

Fosu-Mensah birti mynd á Instagram og merki Herrera á andlit fjórða dómarans, en óhætt er að segja að þarna sé svipur með þeim.

Dómarinn heitir réttu nafni Julien Pacell, en myndina sem Fosu-Mensah birti á Instagram má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner