John Terry, fyrirliði Chelsea, er klár í slaginn fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn.
Hinn 35 ára gamli Terry meiddist á ökkla gegn Swansea í síðasta mánuði og hefur verið frá keppni síðan þá.
Hinn 35 ára gamli Terry meiddist á ökkla gegn Swansea í síðasta mánuði og hefur verið frá keppni síðan þá.
Í vikunni bárust fréttir af því að meiðsli Terry hefðu tekið sig upp á nýjan leik en það ku ekki vera rétt.
„John er í góðu formi," sagði Antonio Conte, stjóri Chelsea í dag.
„Hann er búinn að æfa með liðinu. Hann er búinn að leysa vandamálið með ökklann og hann er er klár í leikinn."
Athugasemdir