Vigil van Dijk, varnarmaður Southampton, segir að liðið hafi ekki nýtt færin sín nægilega vel í 1-0 tapinu gegn Inter í Evrópudeildinni í gærkvöldi.
Southampton var mikið betra liðið í leiknum en Antonio Candreva skoraði samt sem áður eina mark leiksins úr einu tilraun Inter á markið, í öllum leiknum.
Van Dijk hefði sjálfur getað skorað tvisvar í lokin en hann segir Southampton átt að hafa klárað leikinn í fyrri hálfleik.
„Við vorum eina liðið sem átti skilið að vinna. Þeir skora úr sínu eina færi og það er pirrandi. Við hefðum átt að vera búnir að klára leikinn í fyrri hálfleik en þetta getur gerst ef þú nýtir ekki færin þín," sagði Van Dijk.
Athugasemdir