Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. nóvember 2014 11:45
Elvar Geir Magnússon
Balotelli gefur sjálfum sér 7 í einkunn af 10
Mario Balotelli, sóknarmaður Liverpool.
Mario Balotelli, sóknarmaður Liverpool.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli gefur sjálfum sér 7 í einkunn af 10 mögulegum fyrir frammistöðu sína með Liverpool. Fox Sports bað Balotelli um að gefa sjálfum sér einkunn líkt og stöðin gerði þegar hann var hjá AC Milan.

Balotelli gaf sér 6,5 þegar hann var hjá Milan en gefur 7 núna og segir ástæðuna vera þá að hann sé farinn að hlaupa meira.

Balotelli hefur fengið mikla gagnrýni síðan hann kom aftur í enska boltann en honum hefur gengið bölvanlega fyrir framan mark andstæðingana.

„Mörkin munu koma þó þau séu ekki að koma í augnablikinu. Ég hef aldrei hlaupið eins mikið. Ég þarf ekki að fá aðra til að hafa trú á mér svo lengi sem ég hef sjálfur trú á mér," segir Balotelli.

„Fjölskylda mín og nokkrir nánir vinir eru fólkið sem skipta mig máli. Þau hafa trú á mér og því að ég geti orðið toppleikmaður fyrir þetta lið."


Athugasemdir
banner
banner
banner