Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Valencia hafi mikinn áhuga á argentínska miðjumanninum Enzo Perez, leikmanni Benfica.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur fest sig í sessi í argentínska landsliðinu undanfarin misseri og er hann lykilmaður í liði Benfica sem verðmetur hann á 30 milljónir evra, eða sem nemur klásúlu í samningi hans.

Perez, sem einnig hefur verið orðaður við Manchester United, gekk í raðir Benfica fyrir þremur árum.
Hann spilað með argentínska landsliðinu á HM í sumar og á 15 leiki að baki fyrir þjóð sína.
Athugasemdir