Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 21. nóvember 2014 23:21
Brynjar Ingi Erluson
Fabian Schär gæti farið til Juventus í janúar
Fabian Schär
Fabian Schär
Mynd: Getty Images
Svissneski varnarmaðurinn, Fabian Schär, hefur ýtt undir þann orðróm að hann fari til Juventus í janúar en ítalska deildin heillar þennan unga varnarmann.

Schär, sem er 22 ára gamall varnarmaður, verður samningslaus eftir tímabilið en hann hefur verið orðaður við Juventus að undanförnu.

,,Ég er ánægður með að vera orðaður við Juventus. Sería A er mjög stór deild og þar eru mjög sterk lið," sagði Schär.

,,Ég er ánægður hjá Basel í augnablikinu og ég er enn að einbeita mér að því að gera vel fyrir liðið. Við munum sjá hvað gerist í janúar," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner