Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. nóvember 2014 05:55
Daníel Freyr Jónsson
Spánn um helgina - Fyrsti leikur Moyes
David Moyes er nýráðinn stjóri Real Sociedad.
David Moyes er nýráðinn stjóri Real Sociedad.
Mynd: Getty Images
Barcelona mætir Sevilla.
Barcelona mætir Sevilla.
Mynd: Getty Images
Spænska deildin fer aftur af stað um helgina eftir landsleikjahlé og verða stórliðin að sjálfsögðu á ferðinni.

Einn leikur fer fram í kvöld þegar Athletic Bilbao mætir Espanyol.

Morgundagurinn hefst síðan með leik Spánarmeistara Atletico Madrid gegn Malaga, áður en topplið Real Madrid mætir Eibar klukkan 17:00. Real getur með sigri náð 5 stiga forystu á toppnum áður en Barcleona, sem vermir 2. sætið, mætir Sevilla, síðar um kvöldið.

David Moyes stýrir síðan sínum fyrsta leik með Real Sociedad þegar liðið heimsækir Deportivo. Fróðlegt verður að sjá hvort Moyes gefi landsliðsmanninum Alfreði Finnbogasyni tækifærið.

Fjórir leikir fara svo fram á sunnudaginn og má sjá alla leiki helgarinnar hér að neðan.

Föstudagur:
19:45 Athletic Bilbao - Espanyol

Laugardagur:
15:00 Atletico Madrid - Malaga
17:00 Eibar - Real Madrid
19:00 Barcelona - Sevilla
21:00 Deportivo - Real Sociedad

Sunnudagur:
11:00 Rayo - Celta
16:00 Levante - Valencia
18:00 Elche - Cordoba
20:00 Villarreal - Getafe
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner