Heimild: Mirror
West Ham verður án tveggja lykilmanna í leiknum gegn Everton um helgina eftir að þeir Stewart Downing og Diafra Sakho komu meiddir úr landsleikjaverkefnum.
Báðir hafa leikmennirnir spilað frábærlega með West Ham á tímabilinu og situr félagið í 4. sæti deildarinnar með 18 stig úr 11 leikjum.
Downing fór af velli í hálfleik í leik Englands gegn Skotum í vikunni, á meðan Sakho missti af leik Senegal gegn Botswana vegna bakmeiðsla.
Sakho hefur verið funheitur á tímabilinu og skorað sjö mörk með West Ham. Verður hans því sárt saknað um helgina.
Athugasemdir