Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 21. nóvember 2017 21:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Griezmann: Manchester United er möguleiki
Mynd: Getty Images
„Ég hef ekkert á móti Englandi, fyrir utan veðrið. Manchester United er möguleiki," skrifar Antoine Griezmann, leikmaður Atletico Madrid, í ævisögu sinni sem hann er að gefa út.

Griezmann var sterklega orðaður við Manchester United síðasta sumar, en hann ákvað að halda tryggð við Atletico. United gæti gert aðra tilraun til að fá Griezmann næsta sumar.

„Í júní 2017 framlengdi ég samning minn (við Atletico) og er nú samningsbundinn félaginu til 2020," skrifar hann.

„Þrátt fyrir að ég hafi ekki unnið neina titla, þá hef ég allt sem ég vil hérna. Ég hef ekki tekið ákvörðun hvort ég fari."

„Allt veltur þetta á nokkrum atriðum."

Sjá einnig:
Baulað á Griezmann - „Enn hluti af fjölskyldunni"
Athugasemdir
banner
banner
banner