banner
   þri 21. nóvember 2017 21:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mörk Liverpool beint af æfingasvæðinu
Ekki tókst Liverpool samt að landa sigri.
Ekki tókst Liverpool samt að landa sigri.
Mynd: Getty Images
Liverpool lék gegn Sevilla í Meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn var hin mesta skemmtun og alls ekki fyrir hjartveika.

Liverpool lék á als oddi í fyrri hálfleik.

Fyrstu tvö mörkin voru keimlík, alveg eins. Þau komu bæði eftir hornspyrnur og voru beint af æfingasvæðinu.

Roberto Firmino skoraði fyrra markið og Sadio Mane það síðara.

Firmino gerði þriðja markið fyrir hlé og staðan var 3-0 í hálfleik. Í seinni hálfleiknum hrundi hins vegar leikur Liverpool og Sevilla kom til baka og náði að jafna metin í 3-3. Ótrúlegt!

Hér að neðan eru fyrstu tvö mörkin sem voru eins og áður segir mjög lík og líklega beint af æfingasvæðinu.

Sjá einnig:
Afgreiðsla Firmino vekur athygli - Tók "no look"

Smelltu hér til að sjá fyrra markið.

Smelltu hér til að sjá seinna markið.
Athugasemdir
banner
banner